Robbery Godremembersdaughter

Hugleiðingar harðbrjósta unglings!

02.02.2009 18:49:05 / rassmin

Meiri myndir

Búin að setja fleiri myndir í Rán í hnotskurn : )


» 0 hafa sagt sína skoðun

02.02.2009 02:58:09 / rassmin

Þorrablót

Jæja síðasta helgin í Janúar að baki... það er eitthvað mjög ljúft við að heyra það það þýðir bara að það er aðeins minna eftir af vetrinum bara 4 mánuðir:)
Ég kaus að eyða þessari merku heldi í Aðaldalnum kom heim á Föstudaginn og þvoði þvott og var dugleg og eyddi föstudagskvöldinu með fjölskyldunni að spila, reyndar fyrir utan mr. pabba hann var að vinna.  Svo vaknaði ég fyrir allar aldir á laugardaginn við það eitt að Grezko opnaði dós í herberginu við hliðina agalegu lætin ég fór fram bandvitlaus yfir þessu og blótaði honum í sand og ösku fyrir að hafa vakið mig, svo fór ég og skreið á milli litlu dýranna og kúrði með þeim þó ég vekti ekki lukku þegar ég var að príla yfir hrannar til að komast í miðjunna þá var ég helvítis tussa að vekja hann! fallegt orðbragð hjá gamla.  Svo fóru kellur heimilisins að taka til í trog því stefnan var á Þorrablót um kvöldið.  ég var kominn úr sturtu rétt eftir 3 og tilbúinn fyrir 7 sem er mjög góður árangur miðað við mig.. ég eyddi samt klukkutíma fyrir framan spegilinn og pabbi fylgdist spenntur með.
Blótið var ágætt þó mér hafi ekki fundist skemmtiatriðin neitt sérstök þar sem ég skildi enga brandara.. Þá skemmti ég mér vel í góðra vina hópi maturinn góður og svona:)
Ballið var síðan snilld Von er hrikalega góð hlómsveit og stemmningin var mjög góð, ég hitti líka allveg bunka af fólki sem maður hittir sjaldan sem aldrei
Þegar ballið var að klárast var ég ekki allveg til í að fara heim, atlaði sko að djamma lengur en ég fór í hraunbæ að borða meira úr troginu með liðinu og þá seig á seinni hlutann ég var allveg að klárast ég var svo hrikalega þreytt þegar ég kom heim enda steinsofnaði ég um leið og hausinn snerti koddann.
Ég var ekki sú sprækasta þegar ég vaknaði í morgun og þambaði marga lítra af vökva áður en ég svo mikið sem hafði lyst á mat.  Svo eyddi ég deginum með hrannari að horfa á Friends hrikalega kósý veltumst bara um í rúminu hans Grétars og stóðum bara á fætur til að ná í vistir:)
Á morgun er svo kominn Febrúar, þó mér finnist mánaðarmót leiðinleg því þá þarf maður að borga reikninga þá er ég hrifinn af þessum mánaðarmótum því þau eru að stytta þennan endalausa vetur, atvinnuleysisveturinn mikla!
Bjartsýniskonan Rán kveður.


» 0 hafa sagt sína skoðun

28.01.2009 21:17:18 / rassmin

Nýja OTH

Ég var að horfa á nýju OTH seríuna um daginn, djöfull hrikalega er þetta spennandi þó þetta sé 6 serían held ég þá er þetta samt ennþá dúndur gaman... ég vildi að fleiri væru svona góðir í að semja skemmtiefni!
Ílter á afmæli í dag, hann er unnustinn minn sem býr í Tyrklandi og ég er á fullu að halda upp á það, :d haha
Svo er Þorrablót um helgina og stefni ég þangað með minni heittelskuðu Heiðu sem hefur verið mitt deit á þá skemmtun síðustu ár:lol:
Jæja það er svo leiðinlegt sjónvarpsefni að ég hreinlega veit ekki hvað ég á að gera til að deyja ekki úr leiðindum! held hreinlega að stefnan verði á rúnthringinn frekar en að rotna fyrir framan sjónvarpsskjáinn!
takk fyrir pent Robbery


» 0 hafa sagt sína skoðun

19.01.2009 02:18:42 / rassmin

Kominn tími á að blogga:)

Halló:)
Þar sem ég er atvinnulaus og það hreinlega gerist ekkert merkilegt í mínu lífi finnst mér tímabært að byrja aftur að blogga.  Held það sé nebblega þannig að þegar eitthvað mikið er að gerast hjá manni sem maður getur bloggað um svona af alvöru og fólk nennir að lesa það, þá er maður svo upptekinn að maður hefur ekki tíma til að setjast fyrir framan tölvuna og skrifa það niður.  En þegar maður er svona atvinnulaus eins og ég er núna þá hefur maður nógan tíma og er einkar heppilegt að byrja að blogga.

Þar sem ég hef ekki hugsað mér að tala um árið 2008 þá ætla ég ekki að vera með neinn svaka annál frá því ég bloggaði síðast heldur láta það bara duga að byrja á árinu 2009. Sme byrjar líka vel hjá minni:) Ég gerði ekkert af mér á gamlárs, sem er stór áfangi fyrir mig! :haha: Eg fór í sveitina og ætlaði að slappa af njóta restarinnar af jólunum fyrir framan sjónvarpið, og vill svo heppilega til að ég er þar enn! Janúar er að líða í rólegheitunum sem er ágætt, ég held ég hafi aldrei óskað svona mikið að tíminn liði fyrr en núna, því maður verður alveg geðveikur á því að hanga svona endalaust heima, fólk sem nýtur þess að vera atvinnulaust er bara eitthvað skrítið!

Áramótaheitið mitt þetta árið var að vona að árið 2009 yrði betra en árið 2008 sem þarf ekki mikið til að verði og ég er á fullu núna að sjá til þess eins og ég get! það er reyndar frekar erfitt að stjórna því sjálfur en maður verður að reyna að gera hluti sem gera mann hamingjusaman:D

Jæja held þetta sé ágætis byrjunarblogg...
kv. Rán;)


» 0 hafa sagt sína skoðun

25.07.2008 16:38:03 / rassmin

Er að koma heim

Ferðin til tyrklands fór ekki allveg eins og ég haf'ði
áætlað hef verið hérna töluvert lengur en ég ætlaði er að koma heim á morgun eftir 5 vikna dvöl meðal frábærra tyrkja ég held ég bloggi betur um ferðina þegar mér líður betur og búin að jafna mig það er löng og bæði skemmtileg og erfið og sorgleg ferðasaga sem þarf að segja vil bara þakka öllum þeim frábæru vinum sem ég á sem hafa sínt ér óendanlega mikinn stuðning... það er á svona stundum sem maður veit hverjir vinir manns eru!
Hlakka óendanlega mikið til að koma heim og fá mér kjöt og kjötsúpu.
elska ykkur öll og mest elska ég elsku ömmu mína sem fákk þá ósk sína uppfyllta að fara með fjölskylduna sína til tyrklands þó hún hefi ekki lifað að fara með fjölskyldunni heim
kv.  Rán Tyrki


» 5 hafa sagt sína skoðun

19.06.2008 22:03:04 / rassmin

loooong time!!!!!!!!!!!!!!!

Jæja, kannski kominn tími á blogg! það er svo ægilega margt búið að gerast síðan síðast að ég ætla að hlaupa yfir það í grófum dráttum!
- tók próf
- flutti í sveitina
- var heima í sauðburði
- náði öllu nema því sem ég féll í hehe... fél323 og nát123
- krakkarnir útskrifuðust og ég djammaði með þeim
- EUROVISION
- lagið mitt vann ekki
- það var tekið tvo endajaxla úr mér
- það var vont
- grama varð eldgömul og við héldum upp á það
- það fæddist hjúúúddds lamb í sveitinni
- ég flutti á húsó
- byrjaði að vinna í úrval
- það var booring as usual
- fór á fillerí upp á gónhól
- fór í partý með '93 módelum
-vinna vinnna vinnna
- bíladagar
- lenti í slagsmálum
- klikkaðist og sparkaði í hús
- drapst áður en við lögðum af stað heim, man ekkeert eftir kl. 2
- starfsmannagrill, allir heavy fullir ég var ekki verst
- kissti pólverja
- datt í það enn á ný! haha
- fer til Marmaris eftir 5 daga shittt

þá er búið að stikla á stóru helstu atburði lífs míns síðustu vikur, eins og kom fram hérna áðan þá er ég um það bil að fara að pakka í töskur og fara til tyrklands and ill never come back! muhaha nei spaug!
ég er búin að eyða 45 þús. í tannlækna í þessum mánuði sem þýðir að ég á einnlega enga peninga sem er ekkert sérstaklega gott þar sem ég er að reyna að byrja að búa!
Ef einhvern langar að styrkja mig og láta mig fá peninga er það velkomið hringið bara í síma 8467397
Jæja ástarblóm nú held ég að það sé komið nóg  í bili ég verð bara að reyna að gera þetta aðeins reglulegar:D:D
love you long time - >Rob

» 3 hafa sagt sína skoðun

05.05.2008 18:48:00 / rassmin

I hate mondays!

Váh... eftir þennann ógeðslega þynnkudag í gær kom svo sem ekkert á óvart að ég yrði áfram ónýt í dag..  veit ekki hvað ég var að pæla að vera svona ógeðsleg! fór að sofa eitthvað eftir 7 á sunnudagsmorguninn og mætti skjálfandi í vinnunna kl 12... þetta var einn allra glataðasti vinnudagur ævi minnar! kosturinn við hann þó var að það var ekkert svo brjálað að gera þannig ég gat allveg unnið rólega ég hefði ekki getað staðið í mikilli erfiðisvinnu.... í nótt og dag er ég búin að vera að deyja úr bakflæði hvað er einnlega hægt að gera til að þetta hætti.... ég ákvað að sofa bara því þá finn ég ekki fyrir neinu en það er svo galið að vakna þá er ég nær dauða en lífi.... hehe
Þetta er síðasta kennsluvikan í vetur og ég held að ég sé að fara að falla í öllu... sem er great! eða hitt þó heldur! svo er sauðburður for a long time og ég enda svo á að vinna í úrval... góð byrjun á góðu sumri! nú er ég í vafa hvort ég eigi að setja stefnuna á tenerife eða eyjar 2008 what to do?
En mín er þarfnast í að fara að bjarga heiminum kv. R

» 10 hafa sagt sína skoðun

26.04.2008 22:24:08 / rassmin

Snjór! ojjbara

Nú er ekki gleði á bæ... þetta fína sumar sem var að koma og gleðja alla er bara fokið út í veður og vind... nú er bara allt orðið snjóugt og ógeðslegt slabb og leiðindi  þetta er allveg glatað og veldur mér og fleirum geðvonskuköstum!
En hvað um það þá er að styttast í sumarið og ég fer í próf 13-15-16 og svo er robbery að fara í sauðburð.  sem verður kreisí gaman:)
Í kvöld er bara rólegt kvöld við heiða ætlum að kíkka á baukinn svona í tilefni af því að hún má það hehe good times
En einmitt í tilefni af því að hún átti ammli þá ætlum við að borða köku....  núna:)
*Robbery*


» 3 hafa sagt sína skoðun

17.04.2008 12:07:18 / rassmin

Jæja

Jæja, þá er það ákveðið:) hehe ég ætla sem sé ekki að útskrifast í vor ég bara get það ekki... ætla að reyna að ná sem allra flestu sleppa þýsku og sálfræði og taka það utan skóla næsta vetur.
Í sumar ætla ég að vinna í úrval virka daga sé pottó um grænmetið Rán á grænum kosti:) heheh
var einmitt í gær að reyna að finna mér helgar til að vinna ætlaði bara að vinna 1 helgi í mán.  En það er bara frekar erfitt, ég er eitthvað svo bissí:)
Vegna þess hvað veðrið er búið að vera svo gott er ég búin að vera í svo miklu sumarskapi.  Mig langar bara að grilla, skella mér í pottinn, fá mér ís rúnta á blæjubílnum mínum með skutlu á höfðinu sem fíkur þegar ég bruna hratt:) ahaha jámm fantacy :)
En Eydís er umþað bil að fara að skjóta mig fyrir að vera enn að blogga því tíminn er sko byrjaður
Allir að skoða séð og heyrt
allir að bæta á Óliver á laugardagskvöldið og hvetja einungis Kristínu:)
blessi bæ
R


» 7 hafa sagt sína skoðun

11.04.2008 14:30:00 / rassmin

Robbery speaking

Jæja þá er söngkeppni framhaldskólanna um helgina verður svaka stuð:)
Er að fara að vinna í dag og svó í bíó í kvöld með Guðný og Fannari og einhverjum síðan ver ég helginni með Heiðu og Grezko keppninn annað kvöld og svo svaka djamm:)
jeeee...
þetta er búin að vera hell of a weeek fór til tannlæknis og hún var að hrósa mér hvað ég væri með fallegar og vel hirtar tennur og segja mér að ég sé að fara að eyða tugum þúsunda í tannviðgerðir á næstunni það þarf að gera við á 4 stöðum og taka allavega 2 endajaxla svo eru 7 staðir þar sem allt er að gerast og ég þarf einnlega að láta gera við innan skamms gaman að því
Styttist óðum í Tyrkland og pabbi er orðinn svo stressaður að hann er að kafna ég er bara farinn að hlakka til sé mig allveg fyrir mér á ströndinnni með kokteil á bikiníi umkringd einhverjum folum!:) hehe
En jæja þarf að fara að pakka fyrir þessa svaðalegu helgi
og jeijj var næstum búin að gleyma ég er að fara í ríkið fyrir sædísi það er ógó fyndið
kv.R


» 2 hafa sagt sína skoðun

09.04.2008 11:22:48 / rassmin

20 ára mær

Eldgamla að tala...
Núna er ég orðinn gömul og má gera allt og fara allt jeijj :)
Ég var svakalega full á afmælinu mínu man bara brot og brot gerði allavega margt sem ég hefði betur sleppt þó ég hafi ekki gert allt sem sögur segja!
Var allvega ónýt á Sunnudaginn fékk reyndar kfc frá ma og pa þegar þau komu heim sem var svaka gott...
Núna er sumarið komið á hreint, ég ætla að vinna hjá pabba í sveitinni í vor í sauðburðinum og svo ætla ég að vinna í úrval fer til tyrklands 24 júní og verð svo í úrval þangað til 26 eða 28 ágúst þá fer ég til tenerife svo kem ég heim og þarf að huga að framtíðarstarfi og íbúð eða flytja eitthvert eða eitthvað svona fullorðins!
Ef þú átt allt of mikið af peningum þá má endilega hafa samband ég er til í að taka þá fyrir þig. 
kv. R


» 3 hafa sagt sína skoðun

04.04.2008 13:54:01 / rassmin

2 dagar:D

jæja þá er afmælið á sunnudaginn jeijj! hehe stefnan er matur og upphitun heima og svo djamm á akureyri...:D þetta verður vonandi gaman maður verður að reyna að gera gott úr þessum aldri;) haha hlakka til að fá afmælisgjafirnar listin kemur hér:
bílpróf
bíl
rúm
sófa
hárlengingar
peninga
ný föt
o.fl.
ef þú stefnir á að eyða minna í gjöf þá er allt annað vel þegið:) t.d.  nýja handtösku, enskubókina sem ég týmdi ekki að kaupa mér, æjj you know.. surprice me!:D hehe
jæja þarf að far að læra:)
kv. R


» 2 hafa sagt sína skoðun

02.04.2008 16:43:52 / rassmin

1. Apríl

ahahahahahahahahahaha

» 1 hafa sagt sína skoðun

01.04.2008 22:06:58 / rassmin

Shitt

Jæja frábært!
Þá er það komið á hreint  Rán er að fara að fjölga sér f*ck gamla með barn í maganum 
Ef einhverjum langar að eiga það bara hafa samband ekki hef ég tíma til að fara að ala upp barn einhverjar hugmyndir hvað ég eigi að gera eru vel þegnar... 
kv.  Robbery

» 1 hafa sagt sína skoðun

28.03.2008 11:53:53 / rassmin

9 dagar í ellismellinn

Jæja þá er það komið á hreint Robbery verður á Húsavík í sumar alalvega að mestu held ég.  Hætt við að gerast heimsfari, allavega í bili það fær að bíða betri tíma.  Nú þegar ég hef 9 daga til að gera allt sem þarf að gera áður en maður verður gamall þá fer maður að hugsa og ég hef ákveðið að gera allt sem mig langar til í þessa 9 daga og svo hefst strangt ellismella líferni:) haha...
En Tyrkland nálgast óðfluga og pabbi er næstum hættur að geta sofið fyrir stressi ég er búin að ákveða að skella mér í jeppasafarí sem hljómar mjög spennandi og Heiða ætlar að koma með.  Svo vorum við um páskana að ræða ferðina og ég og Heiða að ræða skemmtistaði kom Gummi þá ekki með þá frábæru hugmynd að stelpur færu ekki einar á djammið þær fengju ekki frið! Til hver heldur hann að við séum að fara að djamma heldur hann að við viljum ekki smá athygli hann er lúser en tími bæ:)

» 5 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 10
RobBery GodrEmembeRsdaUghter
*ransa_69@hotmail.com*